Fyrsti snjódagur skólaársins skall á okkur með látum í dag og segja má að skólahald hafi litast af spennu, gleði og ærslagangi. Nemendur á öllum aldurstigum nýttu frímínútur til að bregða á leik og snjóhús, snjókúlur, snjóvirki og snjóengla mátti sjá um alla skólalóðina. Eins og við var að búast fóru snjóboltar fljótt á flug – enda alltaf gaman að hnoða í léttan bolta. Skólastjórnendur brugðu á það í morgunsárið að heimsækja yngri bekkjardeildir og fara vel yfir hvað má og hvað má ekki gera þegar snjórinn lætur sjá sig. Að venju er lögð áhersla á að nemendur gæti þess að fara varlega í snjóboltakasti, kasta ekki í þá sem ekki vilja taka þátt og alls ekki kasta boltum í höfuð hvers annars. Í Lækjarskóla er ákveðið útisvæði sérstaklega ætlað til „snjóboltakasts“ og aðeins þeir nemendur sem vilja taka þátt mega vera þar. Að lokum minnum við á að snjórinn er kaldur og mikilvægt að nemendur séu vel búnir. Hafi ávallt húfur og vettlinga með sér í skólann og jafnvel aukasokka í skólatöskunni. Deila Tísta