Fyrir nokkru fékk Lækjarskóli veglegan ferðahátalara að gjöf frá foreldrafélagi skólans.

Lækjarskóli er afar þakklátur fyrir gjöfina enda er hátalarinn afar hentugur fyrir það fjölbreytta starf sem fer fram í skólanum.

Starfsmenn íþróttahússins voru sérstaklega ánægðir, þar sem hátalarinn fær það hlutverk að styðja við góða stemningu í íþróttatímum.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Viggó íþróttakennara taka sáttur á móti gripnum. Óvíst er hvaða tónlist verður fyrir valinu hjá Viggó, en líkegt þykir að lagið Risar með Frikka Dór muni fá að heyrast reglulega.

Lækjarskóli sendir foreldrafélaginu innilegar þakkir fyrir.