Í frístundaheimilinu Lækjarseli eru nú 118 börn í 1.–4. bekk.

Síðastliðinn föstudag, 21. nóvember, var haldið upp á skemmtilega Selaveislu í Lækjarseli. Selaveisla er haldin þegar hópurinn hefur safnað ákveðnum fjölda sela, en starfsmenn verðlauna nemendumr með sel til að hrósa jákvæðri hegðun samkvæmt SMT stefnunni.

Í tilefni veislunnar máttu krakkarnir mæta í náttfötum eða búningum, taka með sér eitt dót eða bangsa og nutu þess að horfa á bíó og borða popp.

Lækjarsel starfar eftir SMT-stefnunni eins og grunnskólinn og eru hrósmiðar, hvatning og jákvæð samskipti mikilvægur hluti daglegs starfs. Hvataveislur eins og selaveislan eru hluti af þeirri stefnu. Starfsfólkið í Lækjarseli vinnur markvisst að því að skapa öruggt og skemmtilegt umhverfi þar sem nemendur fá að njóta sín og eiga ánægjulegar stundir.