Vinavika var haldin í Lækjarskóla þessa vikuna og tókst afar vel. Markmið vinavikunnar er að efla vináttu, virðingu og samkennd meðal nemenda. Skólahald tók mið af vinaviku og unnu nemendur fjölbreytt verkefni í anda vináttu og jákvæðra samskipta. Áhersla var á að styrkja vináttu innan hvers árgangs en einnig hittust nemendur þvert á aldursstig og áttu góða og vinalega stund saman. Stemningin í skólanum var með besta móti og starfsfólk Lækjarskóla sammála um að vinavikan hafi styrkt skólabraginn og minnt okkur öll á mikilvægi þess að sýna hvert öðru kærleik og hlýju. Deila Tísta