Í Lækjarskóla var bæði haldið upp á Bleika daginn og Regnbogadaginn í vikunni og gaman var að sjá hvernig starfsfólk og nemendur skreyttu skólann í anda þessara daga, hvort sem um var að ræða með hugmyndaríkum klæðnaði, fjölbreyttum verkefnum eða gefandi fræðslu. Segja má að bæði bleiki liturinn og allir litir regnbogans njóti sín vel í Lækjarskóla. Deila Tísta