Árlegir fjölgreindaleikar Lækjarskóla fóru fram í síðustu viku, dagana 18.- 19. september. Markmið með leikunum er að nemendur á ólíkum aldri, frá 1.- 10. bekk, vinna saman að lausn fjölbreyttra verkefna sem reyna á allar greindir. Nemendur í 10. bekk taka sér stöðu liðsstjóra og leiða sinn hóp í gegnum 30 stöðvar þessa tvo daga, þar sem hópurinn tekst á við mismunandi verkefni með samvinnu og gleði í fyrirrúmi. Góð stemning var á leikjunum í ár og mikil ánægja ríkir í skólanum með hvernig til tókst.