Gulur september er mánuður vitundarvakningar um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Gula litinn tengjum við sjálfsvígsforvörnum en sjálfsvíg eru málefni sem varða heiminn allan. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnun deyja um 700.000 einstaklingar árlega í sjálfsvígi, á heimsvísu. Að meðaltali falla 39 einstaklingar fyrir eigin hendi árlega hér á landi. Hvert sjálfsvíg hefur veruleg áhrif á fjölda fólks, aðstandendur og vini, langt út fyrir innsta hring hins látna.

HVETJUM ALLA TIL AÐ VERA Í GULU MIÐVIKUDAGINN 10.SEPTEMBER