Skólinn var settur síðastaliðinn mánudag og að þessu sinni fór skólasetning fram utandyra í rjómablíðu. Dögg skólastjóri hélt stutt ávarp, Björgvin aðstoðarskólastjóri hringdi skólann inn í fyrsta sinn og Sólrún Eva Hannesdóttir spilaði og söng fyrir gesti. Þökkum Sólrúnu kærlega fyrir fallega tóna. 1.bekkur var boðinn sérstaklega velkominn og nemendur fengu gjöf frá skólanum og lófaklapp frá viðstöddum. Að lokinni hátíð utandyra fóru nemendur inn í heimastofur með sínum umsjónarkennara, fengu glaðning frá skólanum og áttu góða stund með bekknum sínum og kennara.

Haustfundir árganga fara fram dagana 3. – 12. september. Nánari upplýsingar verða sendar tímanlega í pósti til forsjáraðila. Við hvetjum til góðrar mætingu á haustfundi, þar sem forsjáraðilar fá upplýsingar um nám og starf nemenda ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum.

Við hlökkum til samstarfsins á þessu skólaári.