Það var kalt en fallegt veður þegar 7.bekkur lagði af stað í hressa heilsubótargöngu í upphafi nýs skólaárs. Umsjónarkennarar nemenda, Erna og Kári, hvöttu þau áfram og töluðu um mikilvægi þess að fá smá súrefni og D-vítamín. Hópurinn rölti sem leið lá inn í Norðurbæ og meðfram Herjólfsgötu þar sem hópurinn leitaðist við að sjá hvali og seli. Gangan gekk mjög vel og fékk hópurinn auk þess góða aðstoð frá kraftmiklum hjólreiðamanni sem minnti hópinn á mikilvægi þess að fara eftir umferðarreglum. Þeim upplýsingum var vel tekið og öll sammála að fylgja reglunum á nýju ári. Eftir nokkra kílómetra göngu komu nemendur og kennarar glaðir og hressir, en þó kaldir, tilbaka. Deila Tísta