Það er alltaf ákveðin tímamót þegar nemendur kveðja grunnskólann sinn við formlega útskrift á hverju vori. Margir útskrifarnemendur hafa jafnvel eytt öllum tíu grunnskólaárunum í sama skóla og eiga því ótal minningar úr skólastarfinu. Það er von okkar í Lækjarskóla að gamlir nemendur hugsi hlýlega til skólans og eigi ánægjulegar minningar úr skólagöngu sinni. Í dag gáfu þrír fyrrum nemendur sér tíma til að líta við í Lækjarskóla, þrátt fyrir að vera komnar í langþráð jólafrí úr framhaldsnámi, og heilsuðu upp á gamla vini. Hvað er einmitt betra en að verja frítíma sínum í að rölta um ganga Lækjarskóla, hitta gamla kennara og annað starfsfólk og setjast svo slakar niður og rifja upp sögur frá grunnskólagöngunni? Við þökkum þessum fyrrum nemendum kærlega fyrir heimsóknina. Deila Tísta