Í síðustu viku fengum við í Lækjarskóla skemmtilega heimsókn þegar Margrét Guðjónsdóttur og Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum, litu við. Á undanförnum árum hafa þær stundað það metnaðarfulla verkefni að fara í allar sundlaugar landsins. Verkefninu lauk fyrir ári með ferð til Grímseyjar, en þá höfðu þær heimsótt allar 127 sundlaugar landsins.
Í framhaldi fóru þær að kanna sundlaugar sem ekki eru opnar almenningi, svo sem þjálfunar- og skólalaugar. Síðan þá hefur heildarfjöldinn nú vaxið í 147 sundlaugar.
Nýverið fengu þær upplýsingar um sundlaugina okkar í Lækjarskóla. Hér að neðan er orðrétt tilvitnun úr færslu þeirra á samfélagsmiðlum:
„Í dag duttum við á bólakaf í lukkupottinn því við fengum leyfi til að prófa sundlaugina í Lækjarskóla í Hafnarfirði sem jafnframt er eina skólalaugin í því dásamlega bæjarfélagi. Svo mikið falleg laug, frábær pottur og geggjuð aðstaða. Móttökurnar voru sérlega hlýjar hjá Alexander sundlaugaverði og miklar þakkir til Björgvins aðstoðarskólastjóra sem greiddi götu okkar. Notuðum tækifærið og endurgerðum listaverk sem okkur áskotnaðist nýverið. Númer 148 í húsi – áfram gakk/synd„
Við í Lækjarskóla erum afar ánægð að hafa getað boðið Margréti og Hildi til okkar og þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina og jákvæð orð um sundlaugina okkar. Við óskum þeim góðs gengis í áframhaldandi sundlaugarferðalagi 🙂