Það má glöggt sjá að það er farið að hlýna vel í veðri og nemendur eru farnir að fara léttklæddari út í frímínútur og í útitíma í frístund. Það er mikið líf og fjör á skólalóðinni þessa dagana. Við fögnum þessum breytingum og hlökkum til áframhaldandi góðra daga utandyra með nemendum. Deila Tísta