Síðastliðinn föstudag var hrekkjavaka haldin víðsvegar um landið og að sjálfsögðu tók Lækjarskóli þátt. Nemendum var boðið að koma í búning í skólann og starfsfólk tók þátt í gleðinni. Fjölbreyttar fígúrur mættu í skólann þennan dag, margar ansi ógnvekjandi. Þetta var skemmtilegur dagur og gott uppbrot í skólastarfinu. Fleiri ógnvekjandi og skemmtilegar myndir má sjá á Instagram síðu Lækjarskóla. Deila Tísta