Á morgun, 31. október, er árleg hrekkjavaka og Lækjarskóli tekur að sjálfsögðu þátt. Nemendum er velkomið að mæta í hrekkjavökubúningum í skólann ef þeir vilja og þá er aldrei að vita nema starfsfólk skólans láti sjá sig í „hræðilegum“ búningum. Þá minnum við á draugahús 10.bekkjar í íþróttahúsinu annað kvöld, sjá auglýsingu: Yngsta- og miðstig klukkan 17:30 – 18:30 Unglingastig 19:30 – 21:00 Einn miði á 300 krónur og tveir miðar á 500 krónur. – 3.bekkjar nemendur verða að vera í fylgd með fullorðnum. Sjoppa á staðnum. Hvetjum öll til að mæta. Deila Tísta