Þann 9.október tóku nemendur og starfsfólk skólans þátt í hugleiðsludeginum, en hann var haldinn nú í tíunda sinn, og í fyrra tóku 60 skólar þátt og um 5.000 börn hugleiddu þann dag. Hugleiðslan fór þannig fram að klukkan 10:30 tóku allir þátt í 3 mínútna hugleiðslu þar sem allir lokuðu augum, settu hendur við bringu, slökuðu og nutu kyrrðarinnar. Hugleiðsluiðkun eykur vellíðan og getur fallið undir uppeldisstefnur eins og jákvæðan aga sem og Uppeldi til ábyrgðar. Einnig tengist hugleiðsluiðkun einum af mannræktarþáttunum 6 sem er heilbrigði og vellíðan og jafnvel öðrum þáttum eins og sköpun og jafnrétti. Hugleiðsla gefur ungu fólki gott veganesti inn í framtíðina um hvernig má auka vellíðan innan frá, auka hjartamiðun og sjálfsmildi, minnka streitu, kvíða, áhyggjur og skapa sinn innri frið. Deila Tísta