Í vikunni 2.–9. maí fékk Lækjarskóli heimsókn frá nemendum úr Ballincollig Community School á Írlandi. Heimsóknin var hluti af Erasmus+ verkefni sem skólinn tekur þátt í með 10. bekk. Í haust fóru fjórtán íslenskir nemendur til Ballincollig á Írlandi og nú var komið að því að írsku nemendurnir heimsæktu Ísland.

Írsku nemendurnir komu ásamt þremur kennurum en hver nemandi dvaldi hjá íslenskri gestgjafafjölskyldu. Nemendurnir frá Írlandi eru á sérsviði þar sem jarðfræði og náttúrufræði eru aðalviðfangsefnin og því var tilvalið að kynna þeim íslenska náttúru og orkuvinnslu.

Á meðan á dvölinni stóð var farið á Þingvellir, Geysir, Gullfoss, Hellisheiðarvirkjun, Grindavík, Bláa Lónið, Elliðaárvirkjun, Perlan og að sjálfsögðu var heimabærinn Hafnarfjörður skoðaður ásamt fyrstu vatnsaflsvirkjun landsins í Hamarskotslæk.

Heimsóknin gekk einstaklega vel og voru írsku vinir okkar mjög ánægðir með ferðina. Margir sögðu erfitt að kveðja við heimförina eftir viðburðaríka og skemmtilega viku.

Slík verkefni eru bæði þroskandi og skemmtileg fyrir nemendur. Auk þess vinna þeir fjölbreytt verkefni sem tengjast námsmati þeirra og efla alþjóðleg samskipti, sjálfstæði og samvinnu.

Árni, Kristín, Erna og Tinna sáu um verkefnið fyrir hönd Lækjarskóla og færum við þeim kærar þakkir fyrir afar vel skipulagt og árangursríkt verkefni.