Það var fámennt en góðmennt í útivistarvali síðastliðinn föstudag, 28. nóvember.
Nemendur í útivistvali, ásamt kennurunum Alfreð og Sjöfn, fóru í göngutúr um miðbæ Hafnarfjarðar í fallegu en köldu veðri. Hópurinn kíkti á Jólaþorpið, fór á Barböru í heitt kakó og endaði svo í skoðunarferð í Hellisgerði. Unglingarnir í útivist – og í raun allir nemendur í Lækjarskóla – eru hver öðrum yndislegri og öll sammála um að þessi ferð hafi verið frábær byrjun á góðu helgarfríi😊