Í síðustu viku fóru nemendur út að skoða lækinn í tengslum við námsefnið Halló heimur. Þar erum við þessa dagana að vinna með kafla um vatnið og var því tilvalið að færa námið út fyrir skólastofuna.

Nemendur skoðuðu lækinn og umhverfi hans og tengdu það sem fyrir augu bar við það sem þau hafa verið að læra um vatn. Skemmtileg leið til að tengja saman nám og nærumhverfi skólans.