Nemendur í 2. bekk vinna saman í lestrarhópum þrjá daga í viku. Árganginum er skipt í fjóra hópa út frá niðurstöðum úr lesferli. Nemendur lesa saman í pörum og skiptast á að vera lesarar og þjálfarar, sem styrkir bæði lestur og samvinnu. Sjá nemendur lesa og hlusta á mynd.

Í náttúrufræði hafa nemendur verið að læra um húsdýr. Þeim var skipt í hópa og bjó hver hópur til hugtakakort um ákveðið húsdýr. Á mynd má sjá hluta af afrakstri verkefnisins.