Síðastliðinn miðvikudag, 29. apríl, var haldið upp á Litlu upplestrarkeppnina í Lækjarskóla. Nemendur og umsjónarkennarar höfðu æft sig vel fyrir hátíðina og stóðu sig öll með mikilli prýði. Nemendur lásu sögur og kvæði af einlægni og hluti þeirra sýndi einnig skemmtilegan dans.

Litla upplestrarkeppnin byggir á sömu hugmyndafræði og Stóra upplestrarkeppnin, þar sem ávallt er haft að leiðarljósi að stefna að betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Lögð er áhersla á virðingu og vandvirkni; allir nemendur eru með í liðinu, allir koma fram á lokahátíð og allir fá viðurkenningarskjal í lokin.

Til hamingju með flotta sýningu, nemendur í 4. bekk og kennarar.