Nemendur í 2. bekk fengu skemmtilega og fræðandi heimsókn frá lögreglunni á dögunum þegar lögregluþjónar komu í skólann og kynntu starf sitt. Börnin fengu að kynnast ýmsum búnaði lögreglunnar og þeir sem vildu máta meðal annars hlífðarvesti, handjárn og prófa kylfu. Einnig fengu nemendur að sjá upptökur úr búkmyndavél lögreglu og fræðast um hvernig hún er notuð í starfi. Að heimsókn lokinni fengu allir límmiða og endurskinsmerki að gjöf við mikla ánægju nemenda.