Nemendur í valgreininni útivist lögðu leið sína upp Helgafell föstudaginn 13.febrúar. Með í för voru kennararnir Sjöfn og Alfreð. Hér er stuttur pistill frá kennurum um ferðina. Það heyrðust þó nokkrar efasemdaraddir í morgun þegar frostið í Hafnarfirði mældist um -12 gráður. En það er einmitt ágætis þrautseigju æfing að halda áfram þrátt fyrir smá mótlæti. Á endanum fengum við frábært veður þegar við gengum upp Helgafellið og mannskapurinn jafnvel kominn á peysuna! Við tókum góða pásu á toppnum því við vorum að njóta en ekki þjóta. Hópurinn gæddi sér á nesti og allir skrifuðu í gestabókina. Heilt yfir gekk gangan virkilega vel og flestir sammála um að þetta hefði verið hressandi inn í helgina. Deila Tísta