Í dag fór fram 150. skólasetning Lækjarskóla. Hátíðin var haldin úti á skólalóð í góðu veðri. Dögg skólastjóri setti skólann og bauð nemendur í 1. bekk sérstaklega velkomna í skólann. Við hlökkum til að hefja skólastarfið í fyrramálið en þá mæta nemendur í sinn fyrsta kennslutíma á nýju skólaári. Við þökkum foreldrum og forráðamönnum fyrir góða mætingu á skólasetninguna. Deila Tísta