Miðvikudaginn 1. október tók Lækjarskóli þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hlaupið er liður í íþróttaviku Evrópu þar sem leitast er við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Lækjarskóli hefur nær ávallt tekið þátt í hlaupinu og er það fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla á landinu.

Hlaupið gekk mjög vel fyrir sig. Nemendur og starfsmenn tóku þátt, mikil stemning í hlaupinu og veðrið frábært. Við endamark fengu nemendur djús glas og öll ánægð.