Þó stutt sé liðið af nýju skólaári eru óskilamunir farnir að safnast upp í skólanum. Við viljum endilega koma sem flestum óskilamunum til eigenda sinna og viljum því kynna fyrir ykkur fyrirkomulag skólans. Fatnaður sem talinn er sem óskilamunur er settur í körfu í anddyri þess aldursstigs þar sem þeir finnast. Að viku liðinni eru allur fatnaður sem ekki skilar sér í réttar hendur settur í óskilamunageymslu, sem finna má á neðri hæð á rauða gangi – milli anddyris og stiga upp á efri hæð. Þar inni er óskilamunum flokkað í körfur til að einfalda leit og úlpur hengdar upp á slá. Þessi geymsla er ólæst og því aðgengileg öllum sem leita fatnaðar sem hefur líklega tapast í skólanum. Alltaf má koma við hjá ritara og leita ráða. Á hverju vori, undir lok skólaársins, eru óskilamunir settir fram og foreldrar / forsjáraðilar upplýstir um að þeir geti komið og leitað að týndum eigum. Fatnaður sem er merktur er reynt að skila til nemanda í skólanum eða hringt heim ef símanúmer er að finna í fatnaði. Deila Tísta