Öskudagur var haldinn hátíðlegur í síðustu viku í Lækjarskóla þegar nemendur og starfsfólk mættu í skólann í fjölbreyttum og skemmtilegum búningum. Öskudagur er einn af þeim skemmtilegu uppbrotsdögum sem haldnir eru ár hvert í Lækjarskóla og setur alltaf svip sinn á skólastarfið. Gangar skólann fylltust af ofurhetjum, skrýtnum dýrum, galdramönnum og alls kyns furðuverum. Nemendur gerðu sér glaðan dag í upphafi dagsins í heimastofum og fara svo í framhaldi fram á ganga þar sem þeir tóku þátt í ýmsum leikjum, dansi og annarri dagskrá. Vert er að geta að nemendur í 8.bekk skipta sér í hópa og tóku virkan þátt í gleðinni með yngri nemendum. Þeir stýrðu þeim og stjórnuðu leikjum af ábyrgð og eiga sannarlega hrós skilið fyrir sitt framlag. Stemningin var góð og öskudagurinn heldur áfram að vera einn af hápunktum skólaársins í Lækjarskóla. Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir gleðina, samveruna og litríkan dag. Deila Tísta