Það var fjölmennt og góð stemning á piparkökudegi Lækjarskóla sem var haldinn hátíðlegur síðastliðinn laugardag. Að venju stóð foreldrafélagið fyrir viðburðinum og þökkum við þeim kærlega fyrir skemmtilegan og vel heppnaðan viðburð.

Fjöldi nemenda mætti ásamt fjölskyldumeðlimum og átti notalega stund saman. Foreldrafélagið bauð gestum upp á piparkökur og glassúr og að auki var boðið upp á heitt kakó, kaffi og notalega jólatóna.

Líklega fóru flest heim með fallega skreyttar piparkökur, þó sumir hafi ekki getað staðist freistinguna og gæddu sér á gómsætum piparkökum jafnóðum og þær höfðu verið skreyttar litríkum glassúr.