Undanfarin ár hefur Hafnarfjarðarbær keypt námsgögn og ritföng til nota í grunnskólum bæjarins. Núna verður breyting á því. Undanfarin ár hefur Hafnarfjarðarbær keypt námsgögn og ritföng til nota í grunnskólum bæjarins. Til að sporna gegn sóun og nýta fjármuni betur var ákvörðun tekin um að þennan skólavetur verða blýantar, pennar, vaxlitir, trélitir, tússlitir og yfirstrikunarpennar ekki hluti af miðlægum innkaupum. Þ.e.a.s. nemendur koma sjálfir með blýanta, penna, vaxliti, tréliti, tússliti og yfirstrikunarpenna. Hérna kemur hugmynd að námsgagnalistum: 1.-4. bekkur 6 stk blýantar þrístrendir HB 2 strokleður Trélitir þrístrendir 12 í pakka Tússlitir 10 – 12 í pakka 1 stk svartur Artline 210 medium 0,6 1 stk pennaveski eða glæran A5 rennilásapoka undir ritföng 5.-7. bekkur 6 stk blýantar þrístrendir HB Trélitir þrístrendir 12 í pakka Tússlitir 10 – 12 í pakka 1 stk svartur Artline 210 medium 0,6 1 stk pennaveski eða glæran A5 rennilásapoka undir ritföng 8.-10. bekkur Nokkra blýanta 1 stk. Rauður kúlupenni 1 stk. Yfirstrikunarpenni 1 stk. pennaveski eða glæran A5 rennilásapoka undir ritföng Við minnum á að merkja alla hluti vel og svo gæti þurft að uppfæra og bæta við eftir þörfum þegar líður á önnina. Deila Tísta