Á 528. fundi fræðsluráðs, þann 21. febrúar 2024, var lögð fram tillaga foreldraráðs Hafnarfjarðar um að símafrí verði í öllum grunnskólum bæjarins. Það var samþykkt sem tilraunaverkefni í apríl 2024 til reynslu. Þetta á við um nemendur í 1.-10.bekk. Í því felst að ekki verði heimilt að vera með síma uppivið á skólatíma í apríl, þ.e. ekki í kennslustundum eða frímínútum, á göngum eða skólalóð en að símar séu geymdir á hljóðlausri stillingu í skólatösku geti hann ekki verið heima meðan á skóladeginum stendur og sé ósnertur fram að lok skóladags; þetta gildir einnig um spjaldtölvunotkun aðra en þá sem skólinn stendur fyrir í daglegu skólastarfi. Í aðdraganda ákvörðunarinnar var tillagan kynnt og haft um hana samráð við ungmennaráð Hafnarfjarðar og skólastjóra grunnskóla sem studdu tillöguna. Reglur um símanotkun eru til íhverjum grunnskóla Hafnarfjarðar í einhverri útfærslu í dag og er útfærsla þess í höndum hvers skóla. Þær mismunandi reglur eru skerptar með þessu tilraunverkefni um símafrí í öllum grunnskólunum óháð reglum sem þegar eru í gildi í hverjum skóla. Meðan á símafríinu stendur hefur verið hvatt til aukins framboðs á afþreyingu í frímínútum og tómstundum á skólatíma auk almennra jákvæðra samskipta í raunheimum milli nemenda. Deila Tísta