Nemendur í 6. bekk unnu skemmtilegt og skapandi hópaverkefni í stærðfræði í dag. Nemendur skiptu sér í hópa og settu upp verslanir þar sem þeir föndruðu eða komu með hluti að heiman og verðlögðu vörurnar sínar. Nemendur fengu platpening til að versla hjá hver öðrum og þurftu verslunareigendur að reikna út heildarkostnað og gefa rétt til baka. Verslanirnar voru fjölbreyttar, meðal annars smákökubúð, Sephora-snyrtivöruverslun, nammibúð, matvörubúð og sérstök mjólkurvörubúð sem bar nafnið Múmú mjólk. Verkefnið reyndi á samvinnu, skipulagshæfni, sköpun og stærðfræðilega hugsun og sýnir vel hvernig hægt er að samþætta mismunandi námsþætti í eitt heildstætt og lifandi verkefni. Deila Tísta