Nemendur í 1. bekk í Lækjarskóla fóru nýlega í skemmtilega vorferð í Lækjarbotna. Þar fóru þeir í göngutúr um svæðið, léku sér saman og nutu þess að vera úti í náttúrunni.

Að göngunni lokinni borðuðu nemendur nestið sitt og áttu góða stund saman. Veðrið lék við hópinn allan daginn og sólin lét sjá sig.

Ferðin tókst afar vel, mikið fjör hjá krökkunum og þau til fyrirmyndar. Öll komu heim ánægð eftir frábæran dag í góðu veðri.