Skólaþing yngsta stigs fór fram þann 22. maí síðastliðinn. Þetta var í fyrsta sinn sem yngsta stigið tekur þátt í skólaþingi, en þingið hefur verið haldið fyrir eldri árganga undanfarin ár. Á skólaþingi fá nemendur tækifæri til að ræða ákveðin málefni í hópum og setja fram tillögur og hugmyndir að bættu skólastarfi. Markmið skólaþingsins er að efla þátttöku nemenda í skólasamfélaginu og skapa vettvang þar sem raddir þeirra fá að heyrast. Hugmyndir og tillögur nemenda verða nýttar í áframhaldandi þróun skólastarfsins. Þingið hófst með setningu í sal skólans þar sem nemendur sungu saman tvö lög. Að því loknu var nemendum skipt í hópa þvert á árganga og í hverjum hópi fóru fram samræður um tvö málefni. Mikil stemning var í skólanum og þingið gekk afar vel. Fjörugar og gefandi samræður áttu sér stað meðal nemenda og ljóst er að áhugavert verður að fara yfir og vinna úr tillögum þeirra um bætt skólastarf. Sérstakur gestur skólaþingsins var Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags. Við þökkum henni kærlega fyrir komuna og þátttöku í þessu vel heppnaða þingi. Einnig færum við deildarstjóra og kennurum bestu þakkir fyrir þeirra framlag og stuðning við nemendur í gegnum þingið. Deila Tísta