Þann 27. nóvember heimsótti slökkvilið höfuðborgarsvæðisins nemendur í 3. bekk Lækjarskóla. Nemendur fengu að skoða tækjabúnað slökkviliðsins og fræðast um fjölbreytt og mikilvægt starf slökkviliðsmanna. Slökkviliðsmenn sögðu sögur úr starfi sínu sem vakti mikinn áhuga og spennu hjá nemendum. Þetta var fróðleg og skemmtileg heimsókn og við þökkum slökkviliðinu kærlega fyrir heimsóknina.