Söngkeppni félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar var haldin í Bæjarbíó miðvikudaginn 11. mars þar sem hver félagsmiðstöð sendi eitt – tvö atriði í keppnina og tvö atriði komusts svo áfram í söngkeppni Samfés sem haldin verður í Laugardagshöll síðar í marsmánuði. Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að þær Esja Erlendsdóttir og Sólrún Eva Hannesdóttir, sem tóku þátt fyrir hönd Lækjarskóla, unnu undankeppnina og munu í framhaldi keppa í söngkeppni Samfés í Laugardalshöll. Þær sungu lagið Take a hint úr þáttunum Victorious. Stór hópur unglinga úr Lækjarskóla mættu til þess að hvetja stelpurunar áfram með plakkötum og látum. Glæsilegt krakkar og til hamingju öll. Deila Tísta