Það má glögglega sjá að gróðurinn úti er kominn í vetrardvala, enda komið inn í desember mánuð og stutt í jólin. En segja má að gróðurinn lifni við í Lækjarskóla yfir vetrartímann þar sem nemendur fræðast um náttúruna og fjölbreytt verkefni minna okkur á litadýrðina sem sumarið færir okkur. Á meðan eldri nemendur læra um hugtök eins og ljóstillífun, vistkerfi, lífbelti og blómgun, unnu nemendur í 1. bekk skemmtilegt verkefni um bókstafina. Úr bókstafnum V varð til þessi fallegi vasi og hvað er betra en fallega skreyttur blómavasi með litríkum blómum, sem bæði lífga upp á umhverfið okkar í Lækjarskóla og minna okkur á sumarið. Deila Tísta