Lækjarskóli hefur opnað stafrænan póstkassa þar sem nemendur, foreldrar og aðrir í skólasamfélaginu geta komið á framfæri ábendingum og hugmyndum um skólastarfið. Við viljum gjarnan heyra hvað ykkur finnst ganga vel, hvað mætti betur fara og hvort þið hafið hugmyndir að verkefnum, viðburðum eða öðru sem gæti gert skólastarfið enn betra. Við hvetjum alla til að nýta póstkassann og taka þannig þátt í að þróa og efla skólastarfið í Lækjarskóla. Sjá hér: https://forms.gle/hYeYHfP6oc995MG48 Deila Tísta