Á hverju ári taka fjölmargar félagsmiðstöðvar grunnskóla þátt í hönnunarkeppninni Stíll þar sem nemendur keppa í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun. Markmið keppninnar er að efla sköpun, frumlega hugsun og listsköpun unglinga, auk þess að veita þeim vettvang til að kynna hugmyndir sínar og afrakstur undirbúningsvinnu. Þemað í ár er: Á tímum Viktoríu. Það er gaman að segja frá því að félagsmiðstöðvar í Hafnarfirði héldu sína undankeppni í síðustu viku og félagsmiðstöð Lækjarskóla, Vitinn, vann verðlaun fyrir besta hárið. Fyrir hönd Vitans tóku Karin Rán, Arna Marín, Hildur Örvars og Thelma Rut í 10. bekk þátt. Lækjarskóli mun því taka þátt í hönnunarkeppni á vegum Samfés fyrir ungmenni í 8.–10. bekk grunnskóla 14. mars. Glæsilegt og til hamingju krakkar. Deila Tísta