Nú í vetur tók nýr tengiliður farsældar barna til starfa í Lækjarskóla, í þeim tilgangi að efla stuðning og samhæfða þjónustu fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra í grunnskólanum.

Tengiliður farsældar er Eygló Björnsdóttir. Hægt er að hafa samband við hana með því að senda henni tölvupóst á [email protected]

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Öll börn undir 18 ára aldri, og fjölskyldur þeirra, eiga að hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf er á.

Hlutverk tengiliðar er:

  • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
  • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
  • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

Þegar barn er  við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

Sjá nánar hér:

Stoðþjónusta

https://www.farsaeldbarna.is/