Sjálfsagt er námið í fyrsta sæti í Lækjarskóla og nemendur vinna fjölbreytt verkefni á hverjum skóladegi. En jafnvel í annasömu skólaumhverfi þarf stundum að leyfa sér að slaka á og njóta í góðum félagsskap. Hvort þessir nemendur hafi verið að ræða stærðfræðiformúlur, bókmenntir eða fara yfir helgarplönin er erfitt að segja. En víst er að öll voru slök og nutu þess að vera saman. Deila Tísta