Nemendur í 2. bekk hafa verið að vinna þemaverkefni um ævintýrið Rauðhettu og úlfinn síðastliðna daga. Á morgun, 17. apríl, er foreldrum nemenda í 2. bekk boðið að koma í skólann klukkan 8:10–9:20 og skoða afrakstur nemenda. Dagurinn byrjar á því að nemendur fara í söng á sal, þar sem Gunnar tónmenntakennari hefur unnið með þeim með ýmis hljóð tengd Rauðhettu. Vonandi sjáum við sem flesta foreldra í fyrramálið til að upplifa ævintýraskóginn með nemendum. Fleiri myndir frá vinnu nemenda verða settar inn eftir heimsókn. Kv. Valdís, Högna og Hulda Deila Tísta