Síðustu dagana fyrir páskafrí ríkti ævintýrastemning í Lækjarskóla þegar haldnir voru árlegir þemadagar þar sem allir nemendur skólans tóku þátt. Þemað að þessu sinni voru þjóðsögur og ævintýri og fékk hver árgangur ákveðið viðfangsefni til að vinna með. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni tengd þemanu, allt frá skapandi skrifum og myndlist til leiklistar og tónlistar. Margir tóku þátt í að semja sín eigin ævintýri eða unnu að því að endurskapa gamlar þjóðsögur og ævintýri, en tilgangur þemadaga er einmitt að efla sköpunargáfu og ímyndunarafl nemenda og á sama tíma leggja áherslu á samvinnu og gleði. Þrátt fyrir að skólahald hafi nánast legið niðri vegna óveðurs einn af þeim þremur dögum sem nýttir voru til þemaverkefna er óhætt að segja að verkefnið hafi tekist afar vel. Eftir páskafrí hafa nokkrir árgangar haldið áfram með vinnu sína til að ljúka við verkefnið og vonandi fá foreldrar og fjölskyldur tækifæri til að sjá afrakstur nemenda síðar. Deila Tísta