Undankeppni í Stóru upplestrarkeppninni á þessu skólaári hefur nú farið fram í Lækjarskóla. Nemendur hafa undanfarnar vikur lagt sérstaka áherslu á upplestur í kennslu og fengið tækifæri til að æfa sig í að lesa upp fyrir samnemendur sína.

Slíkt verkefni gefur nemendum gott tækifæri til að efla lestur, framkomu og sjálfstraust. Mikil áhersla var lögð á að skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi þar sem allir gátu tekið þátt á sínum forsendum.

Keppnin hófst í bekkjunum þar sem nemendur æfðu upplestur og lásu fyrir hvert annað. Að lokum fór fram hátíðleg samvera þar sem valdir voru fulltrúar skólans sem munu taka þátt í lokahátíð upplestrarkeppninnar í héraðinu.

Sigurvegarar í undankeppni Lækjarskóla og fulltrúar skólans í næstu umferð eru Arna Hlín Ýmisdóttir og Áróra Lea Goðadóttir.
Orri Pétursson var valinn varamaður.

Sigurvegarar síðasta árs tóku að sér hlutverk kynna og stóðu sig með stakri prýði, þær Jóhanna Margrét Logadóttir og Ásta Lovísa Ársælsdóttir.

Á meðan dómarar réðu ráðum sínum fluttu nokkrir nemendur tónlist og ljóð. Þökkum við þeim kærlega fyrir fallegan flutning: Benedikt Lárus Bendtsen sem spilaði á þverflautu, Myrra Eyþórsdóttir sem spilaði á píanó og Abdullahi Mohamud Ahmed sem las ljóð á swahílí.

Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með frábæra frammistöðu og hlökkum til að fylgjast með fulltrúum skólans í næsta skrefi keppninnar.

Einnig ber að nefna framlag kennaranna, Kára, Ernu og Sigrúnu, sem sýndu nemendum mikinn stuðning og aðstoðuðu nemendur við allan undirbúning.