Í Lækjarskóla hófst íþróttakennsla skólaársins með útikennslu. Íþróttakennarar leggja kapp á að kenna nemendum fjölbreytta leiki sem hægt er að stunda utandyra, glíma við alls konar þrautir og að sjálfsögðu hlaupa skólahringinn. Ekki er þó síður mikilvægt að nemendur njóti veðurblíðunnar áður en veturinn skellur á og íþróttakennsla færist innandyra. Á myndinni má sjá Viggó íþróttakennara ræða við nemendur í 1. bekk rétt áður en nemendur fengu að hlaupa um alla skólalóðina í fjölbreyttum og fjörugum leikjum. Deila Tísta