Vorhátíð Lækjarskóla var haldin í gær og var þar mikið um fjör og skemmtun fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra.

Á hátíðinni voru hoppukastalar, grillaðar pylsur, blöðrur og ýmsar þrautir sem vöktu mikla lukku meðal gesta. Góð mæting var á hátíðina og veðrið sýndi sínar bestu hliðar með sól og kyrru veðri.

Lögreglan mætti einnig á svæðið og tók þátt í gleðinni með nemendum. Hún gaf börnunum límmiða sem vakti mikla ánægju hjá yngstu gestunum.

Að lokum vill Lækjarskóli færa foreldrafélaginu og öllum þeim sem komu að undirbúningi hátíðarinnar kærar þakkir fyrir frábært starf og skemmtilega samveru.