Síðustu ár hefur það verið hefð í desember að nemendur í unglingadeild hafa unnið að heildstæðu verkefni í verkefnamiðuðu námi. Í vikunni 8.-12.desember var komið að verkefnavikunni og fengu nemendur mismunandi verkefni:

8.bekkur fékk það verkefni í hendurnar að vinna heimsálfurnar og dýralíf

9.bekkur unnu með tækninýjungar á 20.öldinni

10.bekk skipulögðu framtíðarsamfélagið eftir 100 ár.

Nemendur fengu skýr fyrirmæli frá kennurum en um leið fengu þau að nálgast verkefnin eftir sínu höfði en áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og sköpun. Útkoman var ansi fjölbreytt og skemmtileg og föstudaginn 12.desember var foreldrum og fjölskyldu boðið á uppskeruhátíð þar sem verkefnin voru kynnt.

Á vordögum mun unglingadeildin vinna aftur að heildstæðu verkefni.

Glæsilegt framtak deildarstjóra og kennara á unglingastigi Lækjarskóla og vel heppnað og gefandi verkefni