Nemendur í 9. bekk hafa undanfarna daga unnið að fjölbreyttum tilraunum í efnafræði. Mikil gleði og góð stemning hefur ríkt í tímum, enda vekur verkleg kennsla oft mikinn áhuga hjá nemendum. Auk þess að vera skemmtileg hjálpar hún þeim að tengja fræðilega þekkingu við raunveruleg viðfangsefni og dýpkar þannig skilning þeirra á því efni sem þau hafa tileinkað sér í vetur. Það er gaman að sjá nemendur takast á við verkefnin af forvitni, samvinnu og áhuga. Deila Tísta