3. bekkur hefur  verið að læra um landnám Íslands og fengu af því tilefni skemmtilega heimsókn frá frænda eins nemanda í bekknum. Frændi sá, Samúel að nafni, er víkingur í víkingaklúbbnum Rimmugýgur í Hafnarfirði og fengu nemendur að spyrja hann spjörunum úr um líf og störf víkinga.

Einnig fengu nemendur að skoða víkingaföt og vopn sem notuð voru til ýmissa verka hér á landi fyrr á tímum. Heimsóknin var bæði fræðandi og skemmtileg og vakti mikla ánægju meðal nemenda.

Þökkum Samúel kærlega fyrir komuna.