Í gær opnaði Vitinn starfsemi sína að nýju með því að bjóða nemendum í partý á skólalóð Lækjarskóla.

Mætingin var frábær og gaman var að hitta alla aftur eftir sumarfríið og njóta góða veðursins saman. Boðið var upp á ís, popp og hoppukastala og stemningin var eins og best verður á kosið.

Opnun Vitans í vetur er:

8. – 10. bekkur: Opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl.19:30 – 22:00
Miðdeild:

5. bekkur: mánudaga kl.17:00 – 18:45

6. bekkur: miðvikudaga kl.17:00 – 18:45

7. bekkur: föstudaga kl.17:00 – 18:45

Myndir frá opnunarhátíð Vitans