Nemendur í 2. bekk fóru nýverið í skemmtilega og fróðlega vorferð á Garðskaga og í Þekkingarsetrið í Sandgerði. Þar fengu þau tækifæri til að fræðast um náttúru, dýralíf og sögu svæðisins á lifandi og áhugaverðan hátt.

Veðrið lék við hópinn og nemendur nutu þess að skoða umhverfið, taka þátt í verkefnum og eiga góðar stundir utan skólastofunnar. Ferðin heppnaðist afar vel.